Skúrir í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir austan og norðaustan 8-13 m/s norðvestantil á landinu, en hægviðri sunnan- og austanlands. Víða súld eða rigning, en skúrir suðvestanlands. Austan 3-10 m/s og dálítil rigning sunnan- og vestanlands á morgun. Skýjað á Norður- og Austurlandi en úrkomulítið. Hiti 7 til 15 stig.