Skúrir í allan dag

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Suðlæg átt, víða 8-15 m/s, en hægari norðvestantil. Rigning eða súld með köflum, en þurrt að kalla norðaustanlands. Snýst í suðvestan og vestan 5-10 með skúrum eftir hádegi, fyrst vestantil. Áfram suðvestlæg átt á morgun, 5-10 m/s og skúrir, en bjartviðri austanlands. Hiti á bilinu 8 til 15 stig, en víða 15 til 20 norðaustan- og austanlands í dag.