Skúrir eða slydduél í dag
Klukkan 6 var suðvestlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða él, en skýjað með köflum og þurrt austanlands. Svalast var um frostmark víða norðvestantil, en hlújast um 7 stiga hiti suðaustanlands.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn
Suðvestan og vestan 5-10 m/s skúrir eða slydduél, en hægari austlæg eða breytileg átt með kvöldinu og úrkomulítið. Hiti 2 til 7 stig.
Af vef Veðurstofunnar. Kortið sýnir veðrið í dag um hádegi.