Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skúrir eða slydduél
Mánudagur 21. nóvember 2011 kl. 09:23

Skúrir eða slydduél

Sunnan 10-15 m/s og skúrir eða slydduél við Faxaflóa. Heldur hægari í kvöld. Gengur í austan 10-15 á morgun með dálítilli rigningu, fyrst sunnantil. Hiti 1 til 6 stig.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Sunnan 8-13 m/s og skúrir eða él. Heldur hægari undir kvöld. Austan 8-15 undir hádegi á morgun og rigning, en hægari síðdegis. Hiti 2 til 5 stig.


Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Vestlæg átt, víða 8-13 m/s, en 15-20 með S-ströndinni. Skúrir eða él í flestum landshlutum, síst þó á A-landi. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins.


Á fimmtudag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt með éljum S- og V-lands, en annars bjartviðri. Frostlaust úti við ströndina, en frost annars 0 til 7 stig.


Á föstudag og laugardag:
Vestlæg átt og dálítil él, einkum úti við sjóinn og heldur kólnandi veður.


Á sunnudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt með éljum víða um land. Svalt í veðri.