Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skúrir eða jafnvel slydduél seint í dag
Sunnudagur 6. nóvember 2011 kl. 11:47

Skúrir eða jafnvel slydduél seint í dag

Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða jafnvel slydduél seint í dag við Faxaflóa. Hiti 1 til 6 stig. Hæg suðlæg átt í fyrramálið og úrkomulítið, en vaxandi austanátt eftir hádegi á morgun með rigningu og hlýnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan 5-13 m/s og skúrir. Hiti 2 til 6 stig. Hæglætisveður í fyrramálið og þurrt, en vaxandi suðaustanátt með rigningu eftir hádegi og hlýnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Sunnan 10-18 m/s, hvassast vestast á landinu. Rigning eða súld, en þurrt á N-landi. Hiti 5 til 11 stig.

Á miðvikudag og fimmtudag: Suðaustlæg átt og væta með köflum, en yfirleitt þurrt á N-verðu landinu. Hiti 4 til 9 stig.

Á föstudag og laugardag: Austlæg átt og dálítil rigning, síst V-lands. Kólnar lítið eitt.