Bygg
Bygg

Fréttir

Skúla boðið kjallarasæti og hent út
Laugardagur 21. mars 2009 kl. 20:55

Skúla boðið kjallarasæti og hent út

- vildi halda 6. eða 7. sæti

Nafn Skúla Thoroddsen er ekki að finna á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem samþykktur var á fundi kjördæmisþings Samfylkingarinnar í gær. Skúli sóttist eftir 1. sæti listans í nýafstöðnu prófkjöri en hafnaði í 7. sæti. Hann hefði samkvæmt kynjakvóta átt að færast upp í 6. sæti listans. Skúli er mjög undrandi á því að hann sé ekki á listanum og skrifaði á vefsíðu sína í dag: „... sem þó hefði verið eðlilegt miðað við þátttöku mína í prófkjörinu. Þegar fulltrúi stjórnar kjördæmisráðs innti mig eftir því hvort ég vildi vera á  listanum „án skilyrða“ taldi ég eðlilegt að ég skipaði annaðhvort 6. sætið, sem er það sæti sem ég hefði lent í að teknu tilliti til kynjakvóta og er líklega varaþingmannssæti eða að ég færi í 7. sætið, sem ég hafnaði í í prófkjörinu. Það sæti er einnig mögulegt varaþingmannsæti ef vel gengur í kosningunum“.

Eysteinn Eyjólfsson, formaður kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sagði við Víkurfréttir nú undir kvöld að öllum frambjóðendum sem tóku þátt í prófkjörinu hafi verið boðið sæti á listanum. Stjórn kjördæmisráðsins vann síðan tillögu að framboðslista sem samþykktur var samhljóða á yfir 100 manna fundi á Selfossi í gær.

Skúli sagði í samtali við Víkurfréttir í kvöld að það væri rétt að honum hafi verið boðið sæti á listanum eins og kemur fram hér að framan. Það hafi hins vegar ekki verið á þeim slóðum sem niðurstöður prófkjörsins færðu honum. Skúli sagðist myndi fallast á 6.-7. sætið. Hann hafði t.a.m. fengið næstflest atkvæði í 1. sætið í prófkjörinu.

Skúli sagðist ekki hafa viljað þiggja sæti neðar á listanum. Það hafi ekki verið ásættanlegt. „Eitthvað kjallarasæti er ekki boðlegt,“ sagði Skúli í samtali við Víkurfréttir.

Þá segir Skúli Thoroddsen á vefsvæði sínu, www.skuli.is: „Í prófkjörum er það venja að hagga ekki mikið við næstu 3-4 sætum á eftir þeim sætum sem skilgreind eru „bindandi,“ og sú var niðurstaðan núna að öðru leyti en mig varðaði. Mér var vísað til sætis neðarlega á listanum, ef ég  vildi. Hvorki formaður kjördæmisráðs, né efstu menn á listanum, höfðu fyrir því ómaki að ræða mögulega skipan framboðslistans við mig,“ segir Skúli sem endar pistilinn síðan á þessum orðum: „Skilaboðin voru þess vegna ótvíræð, annaðhvort ferðu niður eða þú ert ekki með. Ég þakkaði gott boð. „Engin hornkerling vil ek vera.“ Að endingu óskar hann listanum velfarnaðar í komandi kosningum.

Listann skipa:
1. Björgvin G. Sigurðsson alþingismaður, Selfossi
2. Oddný Guðbjörg Harðardóttir bæjarstjóri, Garði
3. Róbert Marshall aðstoðarmaður ráðherra, Reykjavík
4. Anna Margrét Guðjónsdóttir forstöðumaður, Brussel
5. Guðrún Erlingsdóttir sérfræðingur í kjaramálum, Vestmannaeyjum
6. Þóra Þórarinsdóttir f.v. ritstjóri, Selfossi
7. Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Höfn
8. Hjörtur Magnús Guðbjartsson framkvæmdastjóri og nemi, Reykjanesbæ
9. Borghildur Kristinsdóttir bóndi, Skarði, Landsveit
10. Andrés Sigurvinsson verkefnisstjóri, Selfossi
11. Sigþrúður Harðardóttir grunnskólakennari, Þorlákshöfn
12. Páll Valur Björnsson verkamaður og nemi, Grindavík
13. Greta Guðnadóttir fiðluleikari, Hveragerði
14. Lúðvík Júlíusson sjómaður, Sandgerði
15. Kristín Ósk Ómarsdóttir fósturforeldri, Sjónarhóli, Ásahreppi
16. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFL, Höfn
17. Önundur Björnsson sóknarprestur, Breiðabólsstað
18. Eyjólfur Eysteinsson fyrrverandi útsölustjóri, Reykjanesbæ
19. Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS og varaformaður BSRB, Þorlákshöfn
20. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður, Reykjavík



Mynd: Skúli Thoroddsen vildi 6. eða 7. sætið hjá Samfylkingunni, til samræmis við niðurstöðu prófkjörs. Það fékk hann ekki og er ekki á framboðslistanum. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn