Bygg
Bygg

Fréttir

Skrúfuðu fyrir daunillan fnyk - myndir
Föstudagur 15. október 2010 kl. 10:18

Skrúfuðu fyrir daunillan fnyk - myndir

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var í gærkvöldi kallað út vegna ammóníaksleka í fiskverkunarhúsi við Njarðvíkurhöfn. Enginn var í húsinu en starfsmaður sem þangað átti erindi varð var við lekann.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja er búið sérstökum búnaði og hlífðargöllum til að fást við eiturefnaleka og fóru slökkviliðsmenn inn í húsið.

Í ljós kom að rör í vélasal hafði gefið sig svo ammóníak fór að leka. Lokuðu þeir fyrir lekann og loftræstu húsið en fnykurinn frá því var orðinn nokkuð megn.

Ammóníak er litlaus daunill lofttegund undir venjulegum kringumstæðum. Ammóníak veldur óþægindum og áreiti í öndunarkerfi manna og augum og getur verið skaðlegt og jafnvel banvænt ef um veruleg og langvarandi áhrif er að ræða. Önnur atriði draga þó úr hættunni af því, til dæmis það að efnið er talsvert léttara en loft og leitar því upp á við ef fært er. Það er ein ástæða þess að ammóníaklykt stendur oft ekki lengi. Sjá má á pollum að það er sem þeir sjóði þegar þeir komast í snertingu við ammóníak og þá veldur það óþægindum á húð manna þar sem það kemst í snertingu við raka.

Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson