Skrifar bók um efnahagsstefnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna
-Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson er gestafræðimaður við University of California, Berkeley
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri skrifaði nýverið undir bókasamning við hið virta útgáfufyrirtæki Routledge Taylor & Francis um útgáfu nýrrar bókar. Bókin mun bera titilinn: Crisis Response and Post Crisis Results in the Nordic and Baltic Countries: Successes, Failures and Lessons Learned. Áætlað er að bókin komi út vorið 2018.
Hilmar er nú gestafræðimaður (Visiting scholar) við University of California Berkeley í boði Institute of European Studies og hagfræðideildar UC Berkeley sem er fimmta besta hagfræðideild Bandaríkjanna ásamt deildinni við Stanford University samkvæmt U.S. News and World Report.
Hilmar hefur flutt opna fyrirlestra við UC Berkeley um viðbrögð Íslands og Lettlands við kreppunni sem skall á haustið 2008. Í hinni nýju bók mun Hilmar skoða efnahagsaðgerðir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í kjölfar kreppunnar og þann árangur sem náðst hefur til dagsins í dag. Sérstök áhersla verður lögð á að greina áhrif eignarhalds Norðurlandanna, einkum Svíþjóðar, á bankakerfi Eystrasaltsríkjanna og áhrif þess á efnahagsstefnu þeirra. Segja má að þeim erlendu bönkum sem starfa í Eystrasaltsríkjunum hafi verið bjargað frá hruni meðal annars með fastgengisstefnu og miklum niðurskurði opinberra útgjalda í Eystrasaltsríkjunum, ekki síst til velferðarmála.
Hilmar segist aðspurður rannsóknarverkefnið snúast um viðbrögð Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna við kreppunni sem skall á 2008 og árangur af mismunandi efnahagsstefnum. „Fyrst töldu t.d. ýmsir að fastgengisstefna Eystrasaltsríkjanna og upptaka evrunnar hefði skilað miklum árangri en nú er ljóst að hægt hefur á hagvexti í þessum löndum, atvinnuleysi er enn mikið. Velferðarkerfin sem voru veik fyrir eru varla til lengur vegna mikils niðurskurðar í ríkisfjármálum. Fólksflótti frá Eystrasaltsríkjunum hefur verið mikill, einkum meðal ungs fólks þannig að í kjölfar kreppunnar varð ungt menntað fólk þeirra aðal útflutningsvara. Þetta getur haft slæm áhrif á hagkerfi þeirra til lengri tíma því þetta fólk flytur oft til Evrópulanda með hærri tekjur og hæpið að það snúi aftur til Eystrasaltsríkjanna.
Á Íslandi féll gengið og bankarnir hrundu. Ef við skoðum árangur stefnunnar á Íslandi er hann mun betri. Mikill hagvöxtur, lítið atvinnuleysi og aukið svigrúm til útgjalda til velferðarmála þó nú sé líka hætta á ofþenslu og rangri forgangsröðun í ríkisfjármálum.
Norðurlöndin, einkum Svíar sem eiga bankakerfið í Eystrasaltsríkjunum kröfðust fastgengisstefnu þar 2008 til þess að bjarga sínum bönkum. Nú erum við að sjá að þetta hefur haft slæm áhrif á efnahag Eystrasaltsríkjanna. Svíar og Finnar lentu sjálfir í bankakreppu árin 1992-3. Þeir felldu gengið líkt og Ísland 2008 og í kjölfarið jókst útflutningur og um leið hagvöxtur og atvinnuleysið minnkaði. Þeir gripu sjálfir ekki til þeirra efnahagsaðgerða 1992-3 sem þeir kröfðust af Eystrasaltsríkjunum 2008.
Lærdómurinn sem við getum dregið að þessu er að efnahagsaðlögun með fastgengisstefnu eins og Eystrasaltstríkin reyndu tekur langan tíma og er mjög hæg. Þetta er að verða þeim dýrkeypt. Sum lönd innan Evrusvæðisins eru líka í vandræðum eins og við þekkjum og eiga erfitt með að aðlagast fastgengisstefnu sem felst í sameiginlegum gjaldmiðli,“ segir Hilmar.
Hefur flutt fyrirlestra í mörgum háskólum
Þess má geta að Hilmar starfaði fyrir Alþjóðabankann (e. Word Bank) í fjögur ár í Eystrasaltsríkjunum og hefur á undanfarin 10 ár flutt fyrirlestra og kennt við marga háskóla í þessum löndum, þar á meðal: Tallinn University of Technology og University of Tartu í Eistlandi; Stockholm School of Economics í Riga, University of Latvia og Riga Stradins University í Lettlandi; og Kaunas University of Applied Sciences, Klaipeda University og Vytautas Magnus University Í Litháen. Hilmar hefur einnig flutt fyrirlestra og kennt við norræna háskóla, þar á meðal: Aalborg University og Copenhagen Business Academy í Danmörku; Haaga-Helia University of Applied Sciences í Finnland og Södertörn University í Svíþjóð.
http://ies.berkeley.edu/people/visitingscholars/hilmarsson.html