Fréttir

Skrifað undir samninga vegna Skógarbrautar 932
Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs og Birkir Kúld frá Merkúr - Hýsi handsala samninginn um viðbygging við Skógarbraut 932. Mynd: Reykjanesbaer.is
Miðvikudagur 14. febrúar 2018 kl. 06:00

Skrifað undir samninga vegna Skógarbrautar 932

Skrifað var undir tvenna samninga vegna Skógarbrautar 932 á Ásbrú í vikunni.
Annars vegar var samningur um breytingar á húsnæði  og hins vegar samningur um viðbyggingu við húsnæðið.

Leikskóli mun vera starfræktur í Skógarbraut 932 og er stefnt að því að klára húsnæðið fyrir næsta haust svo hægt verði að hefja starfsemi í því.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Verkin voru boðin út gegnum vef Ríkiskaupa eins og reglur segja til um, lægsta boð fyrir breytingarhlutann átti HUG verktakar en fyrir viðbyggingarhlutann Merkúr – Hýsi.

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs og Unnar Ragnarsson frá HUG verktökum handsala samninginn um breytingar á húsnæðinu við Skógarbraut 932. Mynd: Reykjanesbaer.is.