Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Skreyttu Bryggjuhúsið fyrir gamaldags jólaball
Mánudagur 3. desember 2018 kl. 09:53

Skreyttu Bryggjuhúsið fyrir gamaldags jólaball

Í gær var fjölskyldum boðið að stíga út úr amstri hversdagsins og njóta þess að koma saman í Bryggjuhúsi Duus Safnahúsa þar sem búin voru til kramarhús, jólahjörtu og músastigar og salurinn skreyttur. Fjölmargir lögðu leið sína í Bryggjuhúisð og tóku þátt í föndrinu.
 
Fyrir um 100 árum síðan stóð Duusverslunin fyrir jólatrésskemmtunum fyrir bæjarbúa í Bryggjuhúsi sem er elsta húsið í Duushúsalengjunni. Allt upp undir 300 börn komu þar saman og dönsuðu í kringum jólatréð og voru mörg þeirra að sjá þar jólatré í fyrsta sinn.
 
Síðastliðin tvö ár hefur þessi saga verið rifjuð upp og haldið gamaldags jólaball í Bryggjuhúsi. Helgina áður hefur verið boðið upp á föndurstund þar sem fjölskyldur útbúa skreytingar á jólatréð og í salinn en einnig til að taka með heim. Hefur þetta verið einstaklega vel heppnuð samverustund og því verður leikurinn endurtekinn í ár. Sunnudaginn 9.desember verður síðan haldið gamaldags jólaball í anda Duusverslunar.

Public deli
Public deli