Skotvopnum stolið í Grindavík
Lögreglunni í Keflavík var í gær tilkynnt um þjófnað á 5 rifflum úr bílskúr við einbýlishús í Grindavík. Einnig mun hafa verið stolið einhverju magni af skotfærum. Þjófnaðurinn er talinn hafi átt sér stað á tímabilinu frá 4. til 13. apríl. Lögreglan segir að málið sé í rannsókn. Lögreglan segir í tilkynningu, að allt of algengt virðist vera að vörslu skotvopna sé ábótavant og þessi mál séu litin alvarlegum augum. Hvetur lögreglan alla þá sem eiga skotvopn að geyma þau í lokuðum byssuskápum og ganga þannig frá að óviðkomandi nái ekki til þeirra. Þá eigi að geyma skotfæri í læstum hyrslum aðskildum frá skotvopnunum.
Þeir sem einhverjar upplýsingar geta veitt við rannsókn málsins eru beðnir um að snúa sér til lögreglunnar í Keflavík, sími 420-2400.
Þeir sem einhverjar upplýsingar geta veitt við rannsókn málsins eru beðnir um að snúa sér til lögreglunnar í Keflavík, sími 420-2400.