Skotspónn skemmdarvarga
Enn og aftur hefur verið brotist inn í sýningarskála Íslendings sem verið er að byggja á Fitjum. Nú var brotin rúða við útidyrahurð og 6 fermetra stór rúða með 10 mm tvöföldu gleri. Málið er í rannsókn og biður lögreglan alla þá sem gætu gefið upplýsingar varðandi málið að snúa sér til lögreglunnar á Suðurnesjum.