Bygg
Bygg

Fréttir

Skotinn við Stafnes og skorinn í Sandgerði
Föstudagur 18. júní 2004 kl. 19:22

Skotinn við Stafnes og skorinn í Sandgerði

Nú síðdegis hefur verið unnið við hvalskurð í Sandgerði. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar hafa verið að skera hval sem veiddist í dag 10 sjómílur undan Stafnesi. Hvalurinn, rúmlega 7 metra löng hrefna af karlkyni, endaði inni á gólfi í fiskvinnsluhúsi í Sandgerði, þar sem dýrið var skorði niður og ísað í kör eftir að fjölmörg sýni höfðu verið tekin úr skeppnunni.
Kjötið af dýrinu var ennþá vel heitt þegar það var skorið í Sandgerði og ljóst að þarna voru menn að verki sem kunnu réttu handtökin. Á nokkrum mínútum var búið að hluta dýrið niður en áður var málbandinu beitt óspart og allt skráð í sérstakar skýrslur. Meira að segja karlmennska þessa dýrs var mæld og umfang hennar og lengd er af þeirri stærðargráðu að mennskir láta sig ekki einu sinni dreyma um þannig stolt!

Myndin er frá hvalskurðinum í Sandgerði nú síðdegis. Á gólfinu má sjá myndarlegt „fille“ sem varla mundi rúmast á nokkru grilli og án efa þarf bæði mikið af mjólk og pipar til að steikja.

Ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn