Skotið á rúðu við Faxabraut
Tilkynnt var til lögreglu um kl. 01:47 í nótt að skotið hafi verið úr loftbyssu í rúðu íbúðarhúss við Faxabraut í Keflavík. Íbúar sáu þann aðila er mundaði skotvopnið og gáfu nokkuð greinagóða lýsingu á því ökutæki er hann fór í ásamt tveimur öðrum.
Ekki hafðist upp á þessum aðilum í nótt. Lögreglan telur sig þó vita hver þarna var að verki en sá eða þeir sem þarna voru að verki eru hvattir til að koma á lögreglustöðina.