Sunnudagur 15. janúar 2006 kl. 12:12
Skotið á hús með litboltum

Skotið var úr litboltabyssu á fjölbýlishús í Njarðvík í gærmorgun. Flótlega beindist grunur að aðila í öðru fjölbýlishúsi þar skammt frá. Lögreglumenn bönkuðu upp á hjá þeim grunaða og viðurkenndi hann verknaðinn. Ekki er um að ræða barn eða ungling heldur fullorðinn aðila sem sagðist hafa ætlað að stríða nágranna sínum. Litboltabyssan er af öflugri gerð og haldlagði lögregla vopnið. Sá grunaði bað íbúa afsökunar og hreinsaði litaklessurnar.