Samkaup hluthafafundur
Samkaup hluthafafundur

Fréttir

  • Skortur á íbúðum í bæ fullum af tómu húsnæði
    Við Brekkustíg í Sandgerði standa margar yfirgefnar eignir í eigu Íbúðalánasjóðs. VF-mynd: Hilmar Bragi
  • Skortur á íbúðum í bæ fullum af tómu húsnæði
    Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarsjórnar Sandgerðis.
Fimmtudagur 24. september 2015 kl. 15:00

Skortur á íbúðum í bæ fullum af tómu húsnæði

- ein af hverjum ellefu íbúðum í Sandgerði yfirgefin

Íbúðalánasjóður á um 90 fasteignir í Sandgerði sem eru flokkaðar sem íbúðir. Þetta eru ríflega 16% af öllum íbúðum í bæjarfélaginu. Fimmtíu íbúðir, eða rúmur helmingur þessara eigna Íbúðalánasjóðs standa auðar og yfirgefnar á sama tíma og íbúum í Sandgerði fækkar. Þetta þýðir að ein af hverjum ellefu íbúðum í Sandgerði er tóm. Atvinnulífið í Sandgerði blómstarar og samkvæmt öllu ætti bæjarbúum að vera að fjölga. Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis, segir hins vegar að skortur á íbúðarhúsnæði valdi því að bæjarbúum fækki.

Starfshópur skipaður fulltrúum Sandgerðisbæjar og Íbúðalánasjóðs hefur verið að skoða stöðu eigna sjóðsins í Sandgerði með það að markmiði að leggja fram tillögur um það hvernig megi bæta ástandið. Þessi vinna hefur leitt í ljós að stór hluti af þessum fasteignum Íbúðalánasjóðs sem standa auðar í bæjarfélaginu eru farnar að súrna. Hvað er átt við því að þær séu að súrna? Eignirnar eru verðlagðar of hátt og ástand eignanna er þannig að of dýrt er að koma þeim aftur á markað, hvort sem er í sölu eða leigu. Íbúðirnar eru sem sagt verðlagaðar þannig að þær seljast ekki og þegar kostnaður við viðhald bætist við yrði dæmið kaupandanum ofviða. Þá þurfa eignirnar mikið viðhald og Íbúðalánasjóður hafi sett sér viðmiðunarupphæð í standsetningu húsnæðis fyrir leigu. Sé kostnaðurinn meiri en viðmið haldi Íbúðalánasjóður að sér höndum og eignin standi áfram auð og haldi áfram að súrna.


„Stór hluti eigna Íbúðalánasjóðs hér í Sandgerði eru það illa farnar að þær falla í þennan flokk þannig að Íbúðalánasjóður vill ekkert gera. Þetta eru þessar súru eignir og það sem verra er að þær súrna með hverju árinu sem líður. Ástandið í þeim lagast ekkert og það er ekkert verið að gera fyrir þær. Þær verða sífellt þyngri og sitja í eignasafni Íbúðalánasjóðs sem losnar ekki við þær. Á sama tíma eru þessar eignir samfélagsmein hér hjá okkur í Sandgerði. Þetta eru oft eldri hús og við gömlu aðalgöturnar okkar, Suðurgötu og Brekkustíg. Þetta hefur bæði áhrif á bæjarmyndina og bæjarsálina,“ segir Ólafur Þór.

Nánar er fjallað um málið í viðtali við Ólaf Þór í Víkurfréttum í dag.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn