Skorið úr skrúfu grásleppubáts
Áhöfnin á varðskipinu Tý var kölluð út vegna grásleppubáts sem hafði fengið tóg í skrúfuna út af Vatnsleysuvík í hádeginu í gær. Skipstjóri bátsins var í sambandi við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð. Varðskipið var þá á Stakksfirði og áhöfn þess brást skjótt við og sendi kafara skipsins á staðinn til aðstoðar.
Kafararnir Kristinn Ómar Jóhannsson og Jón Smári Traustason voru snarir í snúningum og skáru tógið úr skrúfunni skömmu síðar.