Bygg
Bygg

Fréttir

Skorar á heilbrigðisráðherra að heimila notkun á skurðstofum
Fimmtudagur 25. júní 2009 kl. 10:51

Skorar á heilbrigðisráðherra að heimila notkun á skurðstofum

Bæjarráð Sandgerðis hvetur heilbrigðisráðherra til að heimila notkun á skurðstofum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem ekki eru nú nýttar til fulls í sátt við stjórn sjúkrahússins. Með slíkri samvinnu má auka þjónustu og öryggi íbúa svæðisins og auka jafnframt sértekjur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Bæjarráðið leggur á það áhersla að nýta þau tækifæri sem skapast við það eitt að búa til umgjörð fyrir fagfólk á svæðinu, nýta húsnæði og búnað sem er til staðar. Lagðar hafa verið fram raunhæfar tillögur um að tengja saman ferðamennsku og heilsutengda þjónustu á Suðurnesjum, segir í fundargerð.

Þá leggur bæjarráð Sandgerðis hinsvegar áherslu á að engar kvaðir eða skuldbindingar komi til með að falla á íslenska skattgreiðendur við móttöku eða þjónustu við erlenda aðila sem sækja nú heilsutengda þjónustu til Íslands.


Bílakjarninn
Bílakjarninn