Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skorað á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir
Föstudagur 12. mars 2010 kl. 09:04

Skorað á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir


Skorað er á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa,karfa, keilu og löngu í áskorun sem Fiskmarkaður Suðurnesja, Fiskmarkaður Íslands og Reiknistofa fiskmarkaða hafa sent frá sér. Þar kemur fram að nánast ekkert framboð sé á leigumarkaði með aflaheimildir og margar útgerðir að stöðvast í byrjun mars vegna niðurskurðar á aflaheimildum.

Áskorunin er svohljóðandi:

„Með stórfelldum niðurskurði á aflaheimildum s.l. haust er vegið að grundvallar starfssemi fiskmarkaða í landinu. Afleiðingar þessa mikla niðurskurðar eru tvennskonar hvað varðar framboð á fiskmörkuðum. Margar útgerðir eru nú í byrjun marsmánaðar að stöðvast og einnig hefur niðurskurðurinn þær afleiðingar að nánast ekkert framboð er á leigumarkaði með aflaheimildir. Fjöldi fiskvinnslufyrirtækja sem byggja vinnslu á hráefnisöflun með kaupum á íslenskum fiskmörkuðum eru nú í mjög alvarlegri stöðu og sjá í raun ekki fram á annað en fjöldauppsagnir fiskvinnslufólks. Slíkt mun hafa alvarlegar afleiðingar á mörkuðum okkar erlendis með íslenskar sjávarafurðir.

Niðurskurður aflaheimilda og algjört frost á leigumarkaði hefur hvað mest áhrif á þær útgerðir sem staðið hafa undir stöðugu framboði á íslenskum fiskmörkuðum.

Með hliðsjón af aflabrögðum undanfarna mánuði teljum við að engin hætta sé tekin þótt aflaheimildir verði auknar verulega og er í því sambandi hægt að vitna í útreikninga Hafró.

Við skorum því á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa,karfa, keilu og löngu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fiskmarkaður Íslands, Fiskmarkaður Suðurnesja, Reiknistofa fiskmarkaða.“