Bygg
Bygg

Fréttir

Skorað á ríkisstjórnina að fjarlægja fjarskiptamöstur
Þriðjudagur 10. nóvember 2009 kl. 09:05

Skorað á ríkisstjórnina að fjarlægja fjarskiptamöstur


Fjölmenni var á íbúafundi í Saltfisksetrinu í gærkvöldi þar sem fjallað var um hugsanlega hættu af GSM fjarskiptastaurum og almennt um hættuna af fjarskiptamöstrum sem eru innan lands Grindavíkur. Sigurður Ingi Hauksson, sérfræðingur hjá Vodafone, og Þorgeir Sigurðsson, sérfræðingur frá Geislavörnum ríkisins, fluttu fróðleg erindi og síðan voru kraftmiklar og málefnalegar umræður.

Fram komu áhyggjur vegna farsímamasturs sem til stendur að reisa við Víkurbrautina. Þorgeir sagði að mun meiri útgeislun væri frá venjulegum farsíma en mastrinu sjálfu. Nokkrar umræður urðu um þetta og var skorað á bæjaryfirvöld að láta fólkið njóta vafans.

Einnig urðu miklar umræður um svokölluð kafbátamöstur sem bandaríski herinn reisti á sínum tíma og hugsanlega hættu sem af þeim stafa. Meðal annars var stungið upp á því að gera rannsóknir á mávum sem halda til í varplandi við kafbátamöstrin.

Undir lok fundarins var samþykkt eftirfarandi ályktun:

,,Áskorun til ríkisstjórnar Íslands vegna fjarskiptamastra sem sett voru á vegum Bandaríkjahers í landi Grindavíkur:

Það er sameiginleg niðurstaða íbúafundar sem haldinn var í Saltfisksetrinu í Grindavík þann 9. nóvember 2009, að fjarskiptamöstur sem staðsett eru í Grindavíkurlandi á vegum Bandaríkjahers verði fjarlægð hið fyrsta."

Texti og mynd af www.grindavik.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn