Skólaþing í Gerðaskóla í næstu viku
Sveitarfélagið Garður býður íbúum Garðs til skólaþings í næstu viku. Þingið verður miðvikudaginn 13. nóvember og hefst kl. 17:30 í Gerðaskóla.
Nú er unnið að mótun skólastefnu fyrir sveitarfélagið og er skólaþing mikilvægur liður í því verkefni. Á skólaþingi er leitað eftir hugmyndum og sjónarmiðum íbúanna um skólastarfið, sem nær yfir leikskólann, grunnskólann og tónlistarskólann.
Íbúar í Garði eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í skólaþinginu og leggja þannig sitt af mörkum í mótun skólastefnu til næstu ára.