Bygg
Bygg

Fréttir

Skólastjóri Heiðarskóla: Innst inni hræddur um að verkfallið verði langt
Miðvikudagur 22. september 2004 kl. 16:39

Skólastjóri Heiðarskóla: Innst inni hræddur um að verkfallið verði langt

„Ég er nú svo mikill bjartsýnismaður að ég trúi því þar til annað kemur í ljóst að samið verði nú um helgina,“ segir Gunnar Jónsson skólastjóri Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Að jafnaði stunda um 480 nemendur nám við Heiðarskóla en þar standa nú gangarnir auðir og skólastofur tómar.
Gunnar segist vera uggandi þó svo hann segist trúa því að deilan leysist um helgina. „Innst inni er maður hræddur um að verkfallið dragist á langinn en maður verður að vona það besta,“ segir Gunnar en hvaða áhrif hefur verkfallið á skólastarfið? „Maður getur aldrei sagt hvaða áhrif verkfall hefur en það gefur auga leið að áhrifin verða mismikil eftir árgöngum og einstaklingum.“
Aðspurður segist Gunnar ekki geta sagt til um það hvenær skólaönnin verði ónýt vegna verkfallsins. Gunnar segir vinnu- og tímatap verða metið þegar verkfallinu ljúki og að í framhaldinu þurfi að endurskoða námsáætlanir sem búið var að gera fyrir veturinn. „Hugsanlega þarf að leggja meira á nemendur. Sérstaklega er maður þá að hugsa um elstu krakkana sem eru í 10. bekk og taka samræmd próf.“

 

 

 

 

 

 

VF-ljósmyndir/Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn