HSS
HSS

Fréttir

Skólastjóramálið í Sandgerði: „Aumkunarverð tilraun til að koma höggi á meirihlutann“
Fimmtudagur 14. júní 2007 kl. 10:14

Skólastjóramálið í Sandgerði: „Aumkunarverð tilraun til að koma höggi á meirihlutann“

Meirihlutinn í bæjarstjórn Sandgerðis átelur forsvarsmenn Samfylkingar í bænum sem og Pétur Brynjarsson, fyrrum starfandi skólastjóra í grunnskóla bæjarins, fyrir framgöngu þeirra í kjölfar ráðningar Fanneyjar D. Halldórsdóttur í starf skólastjóra.

Eins og lesendur VF vita var mikið fjargviðri í kjölfar ráðningarinnar þar sem fjölskyldutengsl Óskars Gunnarssonar, forseta bæjarstjórnar, við Fanney komust í hámæli. Einnig var rifjað upp að önnur tengdadóttir Óskars, Gerður J. Jóhannsdóttir, var ráðin til bókasafns bæjarins fyrir nokkru.

Segir í yfirlýsingu frá meirihlutanum, sem lögð var fram á aukafundi bæjarstjórnar í gær, að Ólafur Þór Ólafsson, Unnur Kristjánsdóttir og Pétur beri fulla ábyrgð á þeirri umræðu sem farið hefur fram í fjölmiðlum og skaðað bæjarfélagið.

Yfirlýsing og bókun meirihluta fylgir hér á eftir:

Vegna starfsmannaráðninga hjá Sandgerðisbæ vill meirihluti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar taka fram neðanritað.

Meirihluti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar hefur ætíð haft að leiðarljósi fagleg sjónarmið við ráðningar í störf hjá bæjarfélaginu. Í hverju tilviki hefur verið kappkostað að fá til starfa öfluga einstaklinga með góða menntun sem talin er nýtast sem best til viðkomandi starfa.

Bæjarfulltrúar meirihlutans hafa auk þess fengið mjög öflug og sterk stuðningsviðbrögð fjölmargra bæjarbúa og starfsmanna grunnskólans vegna ráðningar Fanneyjar D. Halldórsdóttur í starf skólastjóra. Fólk hefur lýst mikilli ánægju með þessa breytingu og hefur Fanney einnig fengið frábærar móttökur í nýju starfi.

1. Óskar Gunnarsson forseti bæjarstjórnar hefur setið undir ámæli og er því eðlilegt að hið rétta komi hér fram. Hann sat ekki og tók ekki þátt í fundi bæjarstjórnar þar sem gengið var frá vali í stöðu skólastjóra við grunnskólann í Sandgerði.
2. Meirihluti bæjarstjórnar byggir ákvörðun sína á faglegu mati sérfræðinga sem bæjarstjórn valdi einhuga til verksins.
3. Ráðgjafarnir voru Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri í Reykjanesbæ og Ólafur H. Jóhannsson aðjúnkt frá Kennaraháskóla Íslands.
4. Fagleg rök þeirra voru því höfð að leiðarljósi þegar ákvörðunin var tekinn á fundi meirihlutans og var m.a. stjórnunar menntun Fanneyjar D. Halldórsdóttur látinn ráða.
5. Undirskriftarlisti kennara til bæjarstjórnar í byrjun árs var stuðningur við báða skólastjórnendur skólans og áskorun til bæjarstjórnar um að ganga frá ráðningu skólastjóra. Minnihluti bæjarstjórnar túlkar þennan stuðning á þann veg að það eigi að ráða Pétur sem skólastjóra og Fanneyju sem aðstoðarskólastjóri. Þeirri ábendingu er hér með komið á framfæri að sú túlkun er ekki rétt að mati einstaklinga sem rituðu nafn sitt á undirskriftarlistann.
6. Meirihluti bæjarstjórnar kallaði varamenn bæjarstjórnar til samráðsfundar og var ákvörðunin samþykkt einróma eftir umræður þ.e. allir vara og aðalbæjarfulltrúar meirihlutans voru einhuga í tillögu um að styðja Fanneyju D. Halldórsdóttir til starfa sem næsti skólastjóri bæjarfélagsins. Óskar Gunnarsson sat ekki þennan fund þar sem hann var vanhæfur vegna tengsla.
7. Fulltrúar meirihlutans í skólaráði voru boðaðir á umræddan fund og var farið yfir skýrslu ráðgjafa bæjarstjórnar sem lá ekki fyrir þegar skólaráðið fundaði um umsækjendur. Eftir yfirferð voru allir einhuga í því að styðja við ráðningu á Fanneyju D. Halldórsdóttir. Henni er því ætlað að leiða skólann inn á nýjar brautir til heilla fyrir nemendur skólans.
8. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þess að Guðjón Þ. Kristjánsson núverandi skólastjóri til 20 ára er að láta af störfum og er rétt að þakka honum góð störf.
9. Pétur Brynjarsson hefur ákveðið af þessu tilefni að láta af störfum og vill meirihluti bæjarstjórnar færa honum þakkir fyrir sín störf við skólann. Sú ákvörðun hans að hætta er alfarið hans.
10. Meirihluti bæjarstjórnar vill taka fram að ákvörðunin var ekki þægileg þar sem báðir umsækjendurnir voru metnir hæfir og eru auk þess heimamenn.
11. Meirihluti bæjarstjórnar hefur í málefnasamningi sínum ákveðið að vinna að málefnum grunnskólans af mikilli festu og er ætlunin að gjörbreyta m.a. húsnæði skólans og kalla eftir nýrri framtíðarsýn sem skólastjórnendur og annað fagfólk innan veggja grunnskólans mun setja fram við þessar breytingar.
12. Allt tal um að Fanney D. Halldórsdóttir sé ekki hæf þar sem hún er tengdadóttir forseta bæjarstjórnar dæmir sig sjálft út af borðinu.
13. Allt tal um að Gerður J. Jóhannsdóttir, önnur tengdadóttir forseta bæjarstjórnar sem var  ráðinn í starf bókasafnsfræðings hjá bæjarfélaginu er af sama meiði. Þær eru báðar mjög hæfar og eiga ekki að gjalda þess að vera mægðar fulltrúa í bæjarstjórn. Þær voru ráðnar til starfa á eigin forsendum, á grundvelli menntunar sinnar og hæfileika.
Það er alkunna í minni samfélögum eins og hér í Sandgerðibæ að fólk sem ráðið er til starfa getur með einhverjum hætti verið tengt eða skylt bæjarfulltrúum og/eða deildarstjórum stofnana bæjarins og eru mörg dæmi um slíkt. Það er ekkert sem réttlætir það að hæfir einstaklingar gjaldi slíkra tengsla.
Pétur Brynjarsson og Ólafur Þór Ólafsson þurfa hér að staldra við og líta í eigin barm og skoða eigin tillögur um ráðningar á vegum þeirra stofnanna sem þeir hafa verið deildarstjórar fyrir hjá Sandgerðisbæ. Meirihluti bæjarstjórnar er hinsvegar þeirrar skoðunar að skyldfólk þeirra félaga hafi verið ráðið á eigin verðleikum.
14. Gerður Jóhanna sem er í dag hætt störfum hjá bænum  var fengin til að byggja upp nýtt bókasafn á nýjum stað. Það hefði verið óeðlilegt og óheiðarlegt að auglýsa starfið eftir þá miklu vinnu sem hún var búin að vinna fyrir bæjarfélagið.
Allir voru einhuga í þáverandi meirihluta um að hún væri sú rétta fyrir starfið enda með þá menntun sem til þurfti. Óskar tók ekki þátt í þeirri afgreiðslu.
Rétt er að taka það einnig fram að hún hafði sinnt starfi ritara í grunnskólanum og í starfsmannastefnu bæjarfélagsins kemur fram að starfsmenn geta færst á milli starfa þegar önnur störf losna á vegum bæjarfélagsins sé það vilji bæjarstjórnar og áhugi fyrir hendi hjá starfsmanni bæjarfélagsins.
15. Það er hinsvegar staðreynd að Pétur Brynjarsson, Unnur Kristjánsdóttir og Ólafur Þ. Ólafsson eru tengd flokksböndum og koma sem slík að starfi minnihluta bæjarstjórnar.
Það hentar því minnihlutanum að gera mál þetta tortryggilegt út á við.
Samkvæmnt ofanrituðu og í þessu ljósi ber að skoða þann skaða sem umræðan veldur bæjarfélaginu og bera þau þrjú þar fulla ábyrgð á þeirri umræðu sem fram til þessa hefur farið fram í fjölmiðlum.
Viðtöl við þau byggja á dylgjum og eru fyrst og fremst aumkunarverð tilraun til að koma pólitísku höggi á meirihlutann og forseta bæjarstjórnar.

Meirihluti bæjarstjórnar óskar nýjum skólastjóra alls velfarnaðar í starfi og væntir þess að starfsfriður geti ríkt nú þegar nýr kafli hefst í sögu grunnskóla Sandgerðis.
Frá aðal og varamönnum í meirihluta bæjarstjórnar K-lista og D-lista sem og fulltrúa meirihlutanns í skólaráði Sandgerðisbæjar.

Minnihlutinn áskildi sér rétt að svara bókuninni á næsta fundi bæjarstjórnar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn