Mánudagur 10. ágúst 2015 kl. 10:43
Skólastarf hefst eftir hálfan mánuð
Skólastarf í grunnskólum á Suðurnesjum hefst eftir hálfan mánuð en flestir skólar hafa tilkynnt um skólasetningu mánudaginn 24. ágúst.
Kennsla hefst svo þriðjudaginn 25. ágúst. Innkaupalistar hafa ekki verið birtir en búast má við þeim í næstu viku.