Skólamatur ehf. mun áfram sjá um hádegismat í grunnskólum Reykjanesbæjar
Í vikunni var undirritaður samningur á milli Reykjanesbæjar og Skólamatar ehf. um framleiðslu og framreiðslu á skólamat fyrir grunnskóla Reykjanesbæjar að undangengnu útboði sem Ríkiskaup hafði umsjón með. Undirritunin fór fram í Njarðvíkurskóla á matmálstíma.
Tvö tilboð bárust, annað frá ISS Ísland ehf. að upphæð kr. 624.832.598.- og hitt frá Skólamat ehf. að upphæð kr. 567.171.765. Kostnaðaráætlun Reykjanesbæjar var kr. 658.148.291. Samningurinn er til 3 ára með möguleika á framlengingu 2 x 1 ár eða að hámarki til 5 ára. Ávinningur af þessu útboði miðað við 3 ára samning er því kr. 90.976.526.- eða um 14%. Bæði tilboðin voru undir kostnaðaráætlun.
Skólamatur ehf. var með eldri samninginn og mun því áfram sinna grunnskólum í Reykjanesbæ og hefur samstarfið gengið mjög vel á undanförnum árum.