Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skólahald í Sandgerði hefst að nýju að hluta
Mánudagur 8. nóvember 2021 kl. 09:04

Skólahald í Sandgerði hefst að nýju að hluta

Leikskólinn Sólborg í Sandgerði hefur verið lokaður frá því fimmtudaginn 4. nóvember þar sem upp komu smit meðal starfsmanna og barna. Leikskólinn verður áfram lokaður í dag, mánudaginn 8. nóvember. Allir sem eru í sóttkví fara í sýnatöku í dag og verður staðan því metin aftur í kvöld þegar allar niðurstöður úr sýnatökum liggja fyrir.

Þá féll öll starfsemi féll niður í Sandgerðisskóla föstudaginn 5. nóvember, einnig starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar, tónlistarskólans, félagsmiðstöðvar og bókasafns og hefur starfsemi í þessum stofnunum legið niðri yfir helgina.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á fundi aðgerðastjórnar Suðurnesjabæjar, sem fram fór í gær, var eftirfarandi ákveðið:

Leikskólinn Sólborg verður lokaður mánudaginn 8. nóvember og verður staðan endurmetin á mánudagskvöld þegar niðurstöður úr sýnatökum liggja fyrir.

Í samráði við stjórnendur Sandgerðisskóla fá nemendur í 1. – 5. bekkjum skólans leyfi leyfi frá skóla mánudaginn 8. nóvember og eiga ekki að mæta í skólann fyrr en niðurstöður fást úr síðari sýnatöku hjá þeim sem eru í smitgát.

Kennsla verður í 6. – 10. bekkjum frá morgni mánudags 8. nóvember.

Starfsemi íþróttamiðstöðvar, tónlistarskóla, félagsmiðstöðvar og bókasafns hefst að fullu að morgni mánudagsins 8. nóvember.

Aðgerðastjórn mun fylgjast náið með þróun mála og verða frekari ákvarðanir varðandi starfsemi stofnana Suðurnesjabæjar teknar eftir því sem aðstæður kalla á næstu daga.

Aðgerðastjórn leggur ríka áherslu á að allir sinni persónulegum smitvörnum, fari varlega og ítrekar að samkvæmt leiðbeiningum yfirvalda er nú í gildi grímuskylda.