Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Skóflustunga tekin að þjónustumiðstöð á Reykjanesi
Rúnar og Kjartan Már með skóflur á lofti á Reykjanesi. VF-myndir/Hildur Björk Pálsdóttir.
Laugardagur 26. nóvember 2016 kl. 11:30

Skóflustunga tekin að þjónustumiðstöð á Reykjanesi

- þjónustuhús opnað við Reykjanesvita sumarið 2017

Bylting verður í þjónustu við ferðamenn á Reykjanesi næsta sumar þegar þjónustumiðstöð opnar við Reykjanesvita. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Rúnar Sigurvinsson frá Reykjanes Aurora tóku fyrstu skóflustungu að húsinu í gær. Áætlað er að þjónustumiðstöðin verði tilbúin í sumarbyrjun 2017.

Það er félagið Reykjanes Aurora ehf. sem stendur að þessum framkvæmdum en það er í eigu þriggja ungra Keflvíkinga, Rúnar, Örvars Þórs Sigurðssonar og Guðni Sigurbjörns Sigurðssonar. Upphaflega fengu þeir félagar hugmynd að byggingu smáhýsa úr gleri í nágrenni Reykjanesvita sem þeir hafa kynnt en þeir ákváðu síðan að taka þátt í útboði að þjónustuhúsi. Smáhýsin eru á teikniborðinu og þeir vonast til að komast í það verkefni eftir að þjónustuhúsið rís. Það er um að ræða 300 fermetra byggingu þar sem m.a. verður veitingasala og snyrting en lengi hefur verið kvartað yfir því að nauðsynjaþjónustu hafi vantað á Reykjanesi. Reykjanes Geopark auglýsti í upphafi árs eftir áhugasömum aðilum að uppbyggingu ferðaþjónustu við Reykjanesvita og bárust fjögur tilboð. Svæðið er heimsótt  af um 200.000 ferðamönnum á ári, að því er áætlanir gera ráð fyrir.

Að sögn Rúnars var hugað að því að byggingin félli sem best að náttúrunni við Reykjanesvita. Hann þakkaði við skóflugstunguna Reykjanes Geopark, Uppbyggingasjóði Suðurnesja, sem hefur styrkt verkefnið og Reykjanesbæ. Athöfnina tileinkaði hann afa sínum, Guðfinni Sigurvinssyni fyrrum bæjarstjóra í Keflavík sem jarðsettur var í vikunni. Kjartan Már bæjarstjóri sagði við sama tilefni ánægður með að þjónustumiðstöð á þessum fjölsótta ferðmannastað sé loksins að verða að veruleika.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Örvar, Guðni Sigurbjörn og Rúnar, eigendur Reykjanes Aurora.

Fjölmargir ferðamenn sækja út á Reykjanes, eins og þessir, þrátt fyrir norðanblástur í nóvember.