Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skoða umhverfisvæna endurvinnslu á áli í Helguvík
Fimmtudagur 24. mars 2022 kl. 15:22

Skoða umhverfisvæna endurvinnslu á áli í Helguvík

Reykjanesbær og bandaríska fyrirtækið Almex USA Inc., í gegnum íslenskt dótturfélag, hafa náð samkomulagi um að skoða möguleika þess að setja upp umhverfisvæna endurvinnslu á áli í Helguvík. Almex USA Inc sérhæfir sig í framleiðslu á búnaði fyrir úrvinnslu og endurvinnslu á hágæða áli ásamt fjárfestingum í skyldum iðnaði, er leiðandi á sviði endurvinnslu léttmálma og með sérstöðu hvað varðar framleiðslu á áli fyrir geimferða- og flugvélaiðnaðinn. Telur fyrirtækið Ísland vera hentuga staðsetningu fyrir þessa starfsemi. Samkomulagið var samþykkt samhljóða á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun. Bæjarráð hefur heimilað Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu þess efnis.

Um er að ræða umhverfisvæna starfsemi sem yrði hluti af sjálfbæru hringrásarhagkerfi og er áætluð ársframleiðsla 45.000 tonn í fyrri áfanga. Reiknað er með að starfsmenn verði um 60 þegar fullum afköstum er náð. Reykjanesbær horfir jafnframt til þess að afleidd tækifæri af slíkri starfsemi geti styrkt atvinnuþróun á svæðinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Verkefnið er í samræmi við þá stefnu Reykjanesbæjar að í Helguvík byggist upp iðnaður sem hafi jákvæð áhrif á umhverfið og samfélagið. Markmið Reykjanesbæjar er að efla Helguvík sem iðnaðarsvæði sem styður við þá stefnu og hringrásarhagkerfið.