Miðvikudagur 23. janúar 2008 kl. 09:38
Skjálftarnir fundust í Reykjanesbæ

Tveir jarðskjálftar sem mældust um fjóra á Richter urðu norðaustan við Grindavík í nótt. Fyrri skjálftinn varð rétt fyrir kl. 2 í nótt og varð hans vel vart allt yfir í Reykjanesbæ, og annar af svipaðri stærð varð rétt fyrir kl. 6 í morgun.
Rúmlega 30 minni skjálftar mældust í nótt og má búast við smáskjálftum á svæðinu næstu klukkutímana.