Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skjálftar á Reykjaneshrygg
Miðvikudagur 7. september 2005 kl. 08:29

Skjálftar á Reykjaneshrygg

Mikil skjálftahrina hefur verið á Reykjaneshrygg í nótt og tugir jarðskjálfta mælst. Tveir hafa verið yfir þrír á Richter. Annar var 3,1 og hinn 3,8 en þeir mældust báðir á fjórða tímanum í nótt. Skjálftar eru tíðir á þessum slóðum en hrina varð á svipuðum slóðum fyrr á þessu ári.
Myndin er af vef Veðurstofu Íslands og sýnir upptök skjálftana. Grænar stjörnur merkja skjálfta sem eru yfir 3 á Richter.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024