Skjálftahrina við Eldeyjarboða
Jarðskjálftahrina hófst í kvöld suðvestur af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg. Stærsti skjálftinn mældist 3,7 stig, laust eftir klukkan 22 samkvæmt sjálfvirkum skjálftalista á vef Veðurstofunnar en nokkrir skjálftar í kringum 3 stig hafa orðið á þessum slóðum í kvöld.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is frá Veðurstofunni er ekki talið að neitt óvenjulegt sé á ferð en skjálftavirkni er algeng á þessum slóðum.