Skjálftahrina á Reykjaneshrygg
Fimm jarðskjálftar mældust frá klukkan 5.47 til 7.29 á þriðjudagsmorgun á Reykjaneshrygg við Geirfugladrang, samkvæmt upplýsingum Veðurstofu Íslands. Skjálftarnir voru á stærðarbilinu 2,2-3,6 á Richter og mældist sá stærsti kl. 7:07. Frá þessu var sagt á mbl.is. Nokkur skjálftavirkni hefur mælst á Reykjaneshrygg síðastliðna viku, að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur jarðfræðings, en ekki er þó ástæða til sérstakra áhyggna vegna þessa. Steinunn segir að jarðskjálftar séu alltaf öðru hvoru á hryggnum og því þurfi hrinan í morgun ekki að tákna neitt sérstakt. Lítilla sem engra jarðhræringa varð vart eftir kl. átta á þriðjudasgsmorgun. Steinunn segir ekkert benda til þess að um neðansjávar gos væri að ræða þó svo að skjálftarnir væru vissulega á þannig svæði.