Skírdagur rólegur hjá lögreglu
Þrír ökumenn voru stöðvaðir sl. nótt fyrir of hraðan akstur og mældist sá er hraðast ók á 128 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst. Einn ökumaður var kærður fyrir að stöðva ekki á gatnamótum þar sem stöðvunarskylda er. Annars var næturvakt lögreglunnar á Suðurnesjum róleg og það sama má segja um dagvaktina.