Skipulagt viðhaldsstopp á ljósbogaofni United Silicon í dag
Ljósbogaofn United Silicon verður tekinn út vegna skipulagðs viðhalds í dag frá kl 9.00 – 15.00. Uppkeyrsla og rekstur ofnsins hefur gengið vel frá því að hann var gangsettur á ný eftir mánaðarstopp. Skipulögð viðhaldsstopp ofnsins koma til með að fækka óvæntum bilunum og tryggja stöðugleika í rekstri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá United Silicon.