Skipulagt viðhaldsstopp á ljósbogaofni United Silicon
í dag frá 9.00-13.00
Ljósbogaofn United Silicon verður tekinn út vegna skipulagðs viðhalds í dag frá kl 9.00 – 13.00.
Uppkeyrsla og rekstur ofnsins hefur gengið mjög vel frá því að hann var gangsettur á ný eftir að rafskaut brotnaði þann 25. maí sl. Stöðvunin nú er hluti af reglubundnu viðhaldi sem eykur áreiðanleika ofnsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá United Silicon