Skipulagsstofnun segir lokun hafa skaðað ferðamennsku á Suðurnesjum
Í nýlegu áliti Skipulagsstofnunar vegna Reykjanesvirkjunar segir að aukin yfirborðsvirkni hafi eyðilagt aðstöðu sem búið var að byggja upp fyrir ferðamenn í kringum hverasvæðið við Gunnuhver „og takmörkun aðgengis og lokun svæðisins hafi skaðað ferðamennsku á Suðurnesjum mikið,“ eins og segir í orðrétt álitinu.
Hverasvæðið við Gunnuhver á Reykjanesi hefur tekið miklum breytingum og yfirborðsvirkni jarðhita aukist verulega eftir að virkjunin á Reykjanesi kom til sögunnar. Segja má að hverinn sé á fleygiferð en hann færði sig hratt á síðsta ári og tók í sundur veginn sem liggur um svæðið. Hann hefur verið ófær síðan þá.
Um svipað leyti opnaðist stórt hveraop eða öllu heldur gígur á hverasvæðinu sem spýtti leir tugi metra og í kjölfarið var svæðinu lokað fyrir ferðafólki þar sem hættulegt þótti að vera þar á ferli enda svæðið síbreytilegt. Svo virðist sem dregið hafi úr virkninni í gígnum en hún færst til hliðar við hann af nýlegum loftmyndum að dæma.
Skipulagsstofnun segir að í ljósi verndargildis áhrifasvæðis Reykjanesvirkjunar og með hliðsjón af jarðfræðilegri sérstæðni svæðisins og umfangs röskunar, séu samlegðaráhrif núverandi og fyrirhugaðra framkvæmda við Reykjanesvirkjun verulega neikvæð, með tilliti til landslags, nútímahrauna og verndargildis.
„Auk þess getur hávaði, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma, haft neikvæð áhrif á upplifun ferðamanna sem fara um svæðið. Með tilliti til áhrifa á ferðaþjónustu og útivist er það mat Skipulagsstofnunar að jarðvarmavirkjun falli illa að svo sérstæðu svæði sem Reykjanes er náttúrufarslega en á náttúrufari þess byggjast vinsældir svæðisins fyrir útivistarfólk og ferðamenn,“ segir ennfremur í álitinu.
Efsta mynd: Hér er horft beint ofan í gíginn í Gunnuhver. Þarna virðist vera heljardýpi. Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.
Á þessari loftmynd Ellerts Grétarssonar sem tekin var í fyrrasumar má sjá að mikill kraftur og gufa er í gígnum.
Þessa loftmynd tók Oddgeir Karlsson í síðustu viku. Eins og sjá má virðist allur vindur vera úr gígnum en hins vegar mun meiri virkni til hliðar við hann. Spurning hvort þar opnist annar gígur.