Skipulagsstofnun: Álver í Helguvík mun ekki valda óafturkræfum spjöllum
Skipulagsstofnun telur að fyrirhugað álver í Helguvík muni ekki valda verulega neikvæðum og óafturkræfum áhrifum á umhverfi eða samfélag. Þetta kemur fram í matsskýrslu á umhverfisáhrifum á álveri með allt að 250.000 tonna afkastagetu, sem staðsett verður í Helguvík, á bæjarmörkum Reykjanesbæjar og Garðs.
Álit þetta er þó með fyrirvara um umhverfisáhrif tengdra framkvæmda, ss. virkjunarkosti og flutningsleiðir.
Skipulagsstofnun telur að sú ráðstöfun að farga kerbrotum í Selvík sé ásættanleg, sem og þá niðurstöðu framkvæmdaraðila að notast eingöngu við þurrhreinsun.
Þá segir einnig í skýrslunni:
Skipulagsstofnun bendir á að þeir virkjunarkostir sem Hitaveita Suðurnesja hyggist nýta vegna fyrsta áfanga álversins eiga eftir að fara í umfjöllun samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og suma á einnig eftir að fjalla um samkvæmt skipulags- og byggingarlögum. Sveitarfélögin þurfi að huga vel að þessari stöðu þegar kemur að leyfisveitingum.
Skipulagsstofnun telur að vegna óvissu um flutningsleiðir raforku þurfi sveitarfélögin að huga að því hvort bíða eigi með leyfisveitingar fyrir byggingu álversins þar til niðurstaða liggur fyrir. Fyrirhugaður rekstur Norðuráls Helguvík sf. er háður 7. gr. laga nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda.
Skipulagsstofnun telur því að áður en Norðuráli Helguvík sf. verður veitt framkvæmda- og byggingarleyfi þurfi að liggja fyrir hvort fyrirtækið fær þá losunarheimild sem það þarf eða hafi sýnt veitanda losunarheimilda fram á hvernig losun gróðurhúsalofttegunda verði mætt.
Mynd: tölvuteikning af fyrirhuguðu álveri í Helguvík
Smellið hér til að sjá skýrsluna