Fréttir

Skipuð yfirlögregluþjónn fyrst kvenna hér á landi
Bjarney S. Annelsdóttir tekur við skipunarbréfinu úr hendi Ólafs Helga Kjartanssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Föstudagur 10. maí 2019 kl. 09:11

Skipuð yfirlögregluþjónn fyrst kvenna hér á landi

Bjarney S. Annelsdóttir sem starfar hjá embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn. Hún er þar með fyrsta konan sem gegnir því embætti hér á landi. Bjarney leiðir rannsóknardeild og almenna deild embættisins.
 
Bjarney hóf fyrst störf sem afleysingamaður í lögreglunni á Keflavíkurflugvelli árið 1999. Útskrifaðist sem lögreglumaður úr Lögregluskóla ríkisins árið 2003.  Hún starfaði hjá lögreglunni í Hafnarfirði árið 2004 og í Keflavík árið 2005.  Hún hóf störf við kennslu í Lögregluskóla ríkisins sem lögreglufulltrúi árið 2007 til 2013 þegar hún varð aðalvarðstjóri í lögreglunni á Suðurnesjum.  Frá áramótum 2017/2018 var hún settur aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum og síðan skipaður yfirlögregluþjónn frá 15.apríl sl.
 
Bjarney hefur breiðan menntunargrunn en til viðbótar námi úr Lögregluskólanum (2003) lauk hún rekstrarfræði frá Bifröst árið 2002, viðskiptafræði BSc frá Bifröst árið 2006 og M.ed gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá HÍ árið 2016.  Þá hefur hún að baki fjölda starfstengdra námskeiða.
Public deli
Public deli