Skiptar skoðanir um launamálin hjá Norðuráli
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir launakjörin hjá Norðuráli á Grundartanga mun lakari í samanburði við sambærileg störf hjá öðrum stóriðjufyrirtækjum. Hann segir launasamanburð sýna að í sumum tilvikum geti munað nokkrum tugum þúsunda á mánuði. Það sé eitthvað sem Suðurnesjamenn verði að skoða þegar kemur að því að semja við Norðurál um launakjör í álverinu í Helguvík. Starfsmenn Norðuráls á Grundartanga eiga nú í kjaradeilu við fyrirtækið.
„Stóriðjan er jákvæð að því leyti að hún skapar örugg störf. En það sem við erum að berjast við núna er sú staðreynd að launakjörin hjá Norðuráli eru ekki sambærileg við t.d. Alcan í Straumsvík eða Elkem,“ segir Vilhjálmur.
Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli, er þessu ekki sammála. Hann segir byrjunarlaun starfsmanns hjá Norðuráli hafa verið um 364.000 krónur um síðustu áramót, sem muni vera hærra en í öðrum álverum og stóriðjufyrirtækjum á Íslandi. Til viðbótar hafi Norðurál boðið stéttarfélögunum launahækkanir sem eru hærri en almennt sé verið að semja um á Íslandi í dag.
Ítarlegri umfjöllun um þetta mál verður næsta tölublaði Víkurfrétta.