Skipstjóri björgunarskips slasast í brotsjó
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Hannes Þ. Hafstein frá Suðurnesjum, fékk á sig brotsjó á Faxaflóa um á öðrum tímanum í nótt. Skipið var á leið á landsæfingu Slysavarnafélagsins Landsbjargar á sjó sem halda á fyrir utan Grundarfjörð á morgun.
Þegar brotsjórinn reið yfir slitnaði Njörður Garðarsson, Atlantic 21 harðbotna björgunarbátur, aftan úr björgunarskipinu og hvarf sjónum manna. Bátsins hefur verið leitað í nótt en án árangurs.
Veður var vont á svæðinu og þegar brotið kom á skipið var áhöfnin, alls fimm manns, að binda sig niður í stóla sína. Ekki vildi betur til en að skipstjóri björgunarskipsins kastaðist til og rak höfuð í þil þannig að sauma þurfti nokkur spor. Meiðslin reyndust ekki alvarleg og mun hann taka þátt í æfingunni um helgina.