Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skipasmíðastöð Njarðvíkur smíðar stálskip eftir 30 ára hlé
Frá undirritun samnings um smíði bátsins í Skipasmíðastöð Njarðvíkur. VF-myndir: pket
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 31. desember 2021 kl. 08:32

Skipasmíðastöð Njarðvíkur smíðar stálskip eftir 30 ára hlé

— Stakkavík í Grindavík fær afhent nýtt skip eftir tíu mánuði

Stakkavík hf. í Grindavík hefur samið við Skipasmíðastöð Njarðvíkur um smíði á 29,9 brúttótonna línubát sem veiða mun úr krókaaflamarkskerfinu. Báturinn verður fyrsti stálbáturinn sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð í þessum flokki í yfir tuttugu ár. „Þetta eru stór tímamót hjá okkur,“ sagði Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur sem smíðar bátinn í samvinnu við skipasmíðastöð í Tyrklandi. Hermann Ólafsson, eigandi Stakkavíkur, tók undir það og sagði alltaf skemmtilegt að kaupa nýja báta.

Stakkavík var fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið á Íslandi til að láta smíða bát í krókaaflamarkskerfið sem fullnýtti allar reglugerðir þ.e.a.s. báturinn er eins stór og mögulegt er miðað við gildandi reglugerð um smíði báta undir 30 brúttótonnum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Minna kolefnisspor

Með þessum kaupum verður Skakkavík aftur brautryðjandi í smíði báta í krókaaflamarkskerfinu því þessi bátur er sérstaklega hannaður með það í huga að minnka kolefnisspor. Með smíðinni er verið að stíga fyrstu alvöru skref í átt að minna kolefnisspori í smíði fiskibáta. Er það gert með því að stækka skrúfuna og minnka skrúfuhraða. Þá eru tvær 214 kw aðalvélar í bátnum sem báðar eru með áföstum 46kw rafal og áfastri vökvadælu sem knýja skrúfuna. Þannig verða vélarnar alltaf keyrðar á besta mögulega álagi sem gefur u.þ.b 25% minni eldsneytiseyðslu en bátur með hefðbundinni skrúfu og hefðbundnum vélbúnað. Aðeins önnur vélin mun vera í notkun á veiðum en báðar á stími. Báturinn verður smíðaður á hefðbundinn hátt. Skrokkurinn er úr stáli og yfirbyggingin úr áli.

Fjölþætt samstarf tæknifyrirtækja

Smíði skipsins er upphafið að samstarfi Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur og Akkan-Maritime í Tyrklandi. Skrokkurinn verður smíðaður þar en öll önnur vinna unnin hér heima í samstarfi við íslensk tæknifyriræki. Báturinn verður vel búinn búnaði s.s beitningavélabúnaði frá Mustad, krapakerfi frá Kælingu. Vinnslubúnaður á dekki verður frá Mikro og siglingatæki í brú eru frá Sónar. Vélarnar eru frá Mitsubishi. Vökvakerfið er frá Landvélum/Rexroth. Þá er í bátnum 20kw landvél og tvær öflugar 16“ hliðarskrúfur.

Skipasmíðastöð-Njarðvíkur mun afhenda Stakkavík bátinn fullbúinn og tilbúinn til veiða 10. nóvember á næsta ári.

Það var boðið upp á myndarlega tertu í tilefni samningsins. VF-myndir/pket