Skipa vinnuhóp vegna húsnæðisstuðnings sveitarfélagsins
	Velferðarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt skipun starfshóps til að fara yfir húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Er það gert með hliðsjón af þeim breytingum sem hafa orðið m.a. á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, sem og ábendingum í ályktun umboðsmanns Alþingis í áliti hans vegna húsnæðisvanda utangarðsfólks í Reykjavík og stöðu og þróun húsnæðismála eins og hún kemur fram í skýrslu Íbúðalánasjóðs og Velferðarráðuneytisins sem kynnt var á nýliðnu Húsnæðisþingi 2018. 
	Starfshópurinn verður samsettur af þremur fulltrúum úr velferðarráði, tveimur starfsmönnum úr úthlutunarhópi velferðarráðs í húsnæðismálum, sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og framkvæmdastjóra Fasteigna Reykjanesbæjar.
				
	
				

 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				