Skil á auglýsingum til Víkurfrétta eru í dag
Vegna viðhalds á prentvél Víkurfrétta þarf blaðið að fara fyrr til prentunar í þessari viku. Vegna þess þurfa auglýsingar, sem eiga að birtast í Víkurfréttum í þessari viku, að berast til okkar fyrir lokun skrifstofu í dag, mánudaginn 12. júlí.
Sími auglýsingardeildar er 421 0001 og póstfangið er [email protected].
Það sama á við um tilkynningar eða aðsendar greinar til fréttadeildar. Þær þurfa einnig að berast í dag, mánudag. Póstfangið er [email protected].
Með kveðju, ritstjórn.






 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				