HSS
HSS

Fréttir

Skessan í fjallinu flytur til Reykjanesbæjar
Föstudagur 30. maí 2008 kl. 09:43

Skessan í fjallinu flytur til Reykjanesbæjar

- byggir sér heimili við smábátahöfnina í Gróf.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Skessan í fjallinu, úr ævintýrum Herdísar Egilsdóttur um Siggu og skessuna í fjallinu, mun í sumar eignast heimili í Reykjanesbæ. Heimili Skessunnar verður byggt við skúta við smábátahöfnina í Gróf í Keflavík. Það er Norðanbál sem útfærir hugmyndina um heimili Skessunnar en það hefur síðan verið verkefni Ásmundar Friðrikssonar, verkefnisstjóra hjá Reykjanesbæ, að kynna verkefnið fyrir samstarfsaðilum. Kostnaður við verkið er áætlaður um 16 milljónir króna. Hafist verður handa við bygginguna á næstu dögum en heimili Skessunnar verður formlega opnað fyrir gestum og gangandi á Ljósanótt í Reykjanesbæ í byrjun september í haust.

Bækurnar um Siggu og skessuna í fjallinu eru orðnar fimmtán talsins. Þær urðu strax ótrúlega vinsælar. Sagan hefur þegar lifað í fjóra áratugi. Sögurnar eru mikið lesnar, Sjónvarpið gerði myndir eftir fjórum þeirra, hún hefur verið notuð mikið við umferðarkennslu og síðasta vetur sýndi Stoppleikhúsið leikgerð um skessuna í leikskólum og grunnskólum fyrir yngri börn.
Um hugmyndina að heimili Skessunar segir Herdís Egilsdóttir. „Hér á Íslandi eru til drauga-, galdra- og álfa umhverfi fyrir gesti og gangandi en tröllum hefur lítið verið sinnt, en eru þau þó eitt aðalefnið í þjóðsögum okkar og hjátrú.

Hugmynd mín er sú að koma upp Skessugarði, byggja stóran helli með fábrotnum innanstokksmunum í skessustærð, þar sem hægt væri að klifra upp í risarúmið með risasænginni. Fyrir utan sæti risastytta af skessunni, þar sem hægt væri að setjast í kjöltuna, fara í stigum upp eftir henni og sjá sig um. Þarna gætu farið fram alls konar skemmtanir: leikþættir, upplestur, söngur, leikir, þrautir og verkefni til að leysa. Eðli þessarar stóru skessu er ljúft. Hún er allra vinur og boðin og búin til að nota stærð sína og krafta til hjálpar í vanda smákrílanna, vina sinna“.

Herdís hefur lýst yfir gleði sinni yfir, að stjórnendur og ráðamenn Reykjanesbæjar hafa tekið  skessuna upp á sína arma og boðið henni glæsilegan samastað í þjóðbraut, þar sem
hún á vonandi eftir að draga að og gleðja fjölskyldur og ferðalanga.

Lóðin sem ákveðið hefur verið að reisa Skessugarðinn á, er í hjarta staðarins, þar sem hátíðahöld Ljósanætur fara fram,í óskalandslagi við smábátahöfnina, sem römmuð er inn af ægifögrum hnullungum úr Helguvík! Ákjósanlegri geta aðstæðurnar ekki orðið, segir Herdís Egilsdóttir. 

Mynd:
Frá kynningu á framtíðarheimili Skessunnar í fjallinu. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson