Þriðjudagur 31. janúar 2017 kl. 09:03
Skertur skóladagur í Reykjanesbæ í dag
Í dag, þriðjudaginn 31. janúar hafa bæjaryfirvöld skipulagt fund með öllum kennurum í grunnskólum Reykjanesbæjar. Fundurinn hefst kl. 13:30 og því lýkur formlegri kennslu kl. 13:00 þennan dag.
Frístund hefst að lokinni formlegri kennslu fyrir þau börn sem þar eru skráð.