HSS
HSS

Fréttir

Skert þjónusta í Ráðhúsi Reykjanesbæjar frá kl. 14:55 í dag
Miðvikudagur 24. október 2018 kl. 10:08

Skert þjónusta í Ráðhúsi Reykjanesbæjar frá kl. 14:55 í dag

- Húsinu lokað kl. 16:00

Þjónusta í Ráðhúsi Reykjanesbæjar verður skert frá kl. 14:55 í dag. Bókasafni og Ráðhúskaffi verður lokað kl. 14:55 en skert þjónusta verður í þjónustuveri milli kl. 14:55 og 16:00. Á þeim tíma verður einungis hægt að ganga inn í húsið að framanverðu. Ráðhúsinu verður alveg lokað kl. 16:00.
 
Kvennafrídagurinn er í dag. Í sjötta sinn eru konur hvatta til að leggja niður störf, nú kl. 14:55. Tilangurinn er að ná samstöðu í baráttunni fyrir jöfnum launum kynjanna. Konur eru að meðaltali með 26% lægri laun a en karlar.
 
Kjörorð kvennafrísins í ár er „Breytum ekki konum, breytum samfélaginu.“ Baráttufundur hefst á Austurvelli kl. 15:30 sem stendur í klukkustund. Honum verður streymt á vef RUV, ruv.is fyrir þá sem ekki komast á fundinn.
Bílakjarninn
Bílakjarninn