HSS
HSS

Fréttir

Skert starfsemi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna óveðurs
Sunnudagur 6. febrúar 2022 kl. 21:49

Skert starfsemi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna óveðurs

Búast má við mikilli skerðingu á starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja á morgun 7. febrúar vegna óveðurs.

Öll almenn þjónusta hjá heilsugæslu HSS fellur niður fyrir hádegi, þar með talin Covid sýnataka.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þeir skjólstæðingar sem eiga bókaðan tíma á stofnuninni fyrir hádegi og ekki er hægt að afgreiða símleiðis fá úthlutað nýjum tíma við fyrsta tækifæri.

Allir sem eiga bókaðan tíma hjá lækni á heilsugæslunni fá símtal frá lækni.

Athugið! Bráðamóttakan er opin allan sólarhringinn. Ef um bráðatilfelli er að ræða vinsamlega hafið samband við 112.