Skerðing á þjónustu vegna verkfalla BSRB
Mánudaginn 5. júní hefst verkfall félagsmanna BSRB náist ekki samningar fyrir þann tíma. Verkfallið mun hafa áhrif á starfsemi Ráðhús Reykjanesbæjar, bókasafn, sundlaugar, íþróttamiðstöðvar og Umhverfismiðstöð með eftirfarandi hætti:
- Ráðhús Reykjanesbæjar: Afgreiðsla þjónustuvers verður lokuð frá 5. júní til 5. júlí eða þar til verkfall leysist. Eingöngu verður tekið við erindum í gegnum síma 421-6700 og tölvupóst á netfangið [email protected]
- Bókasafn Reykjanesbæjar verður opið en opnunartíminn styttur og lokað kl. 16:00. Þjónusta verður skert og fólk hvatt til að nýta sér sjálfsafgreiðsluvél í afgreiðslu við útlán og skil bóka.
- Umhverfismiðstöð: Verkfallið nær til hluta starfsmanna og verður því skert þjónusta frá 5. júní til kl. 23:59 laugardaginn 17. júní 2023.
- Sundlaugar og íþróttamannvirki: Verkfall er ótímabundið frá mánudeginum 5. júní og verða því sundlaugar og íþróttamannvirki lokuð þar til verkfall leysist. Þetta mun ekki hafa áhrif á almenna kennslu síðustu daga skólaársins sem hefur farið fram í nokkrum íþróttamannvirkjum. Íþróttaæfingar falla niður í öllum íþróttamannvirkjum og sundlaugum.
Á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is, má nálgast upplýsingar um hvert erindum skal beint varðandi ýmsa þjónustu svo sem þjónustu Velferðarsviðs og Umhverfis- og framkvæmdasviðs.