Skerða þurfti starfsemi leikskóla vegna veikinda
- Óvenjuleg staða sem ekki hefur komið upp áður
Vegna veikinda starfsmanna á leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ í dag voru þeir foreldrar sem tök höfðu á beðnir að hafa börn sín heima. Að sögn Kristínar Helgadóttur, leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar, hefur staða sem þessi ekki komið upp í bæjarfélaginu áður. „Einn starfsmaður stóð uppi einn með tvær deildir og öryggisins vegna taldi leikskólastjóri mikilvægt að fara þessa leið. Að sjálfsögðu verður að huga að öryggi barnanna þar sem fjöldi þeirra þarf að vera í samræmi við starfsmenn. Þetta er neyðarúrræði sem grípa þurfti til,“ segir hún.