Skemmti- og fræðsludagur ungra ökumanna

Margvísleg dagskrá er fyrirhuguð og fá ungmennin prófa og skoða ýmislegt sem tengist umferðaröryggi s.s. sýnishorn af slysavettvangi, veltibíl, árekstrarbíl , klippur og ölvunargleraugu svo eitthvað sé nefnt. Lögregla og Brunavarnir Suðurnesja verða með fræðslu um það sem getur farið úrskeiðis í umferðinni og hvernig best sé að fyrirbyggja slys. Skemmti- og fræðslukvöldið verður nánar auglýst í Fjölbrautaskólanum og á helstu stöðum í Reykjanesbæ, en frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar.